Heimasíðan mín
Ef ég gæti bara lýst henni


02.01.2012 20:00

Jólagjafir

Þann 19.des 2011 færði valhópurinn Safnað í sarpinn eldri-borgurum og þeim er búa einir jólapakka til að gleðja. Loðnuvinnslan hefur styrkt hópinn í 5 ár og þökkum við kærlega fyrir þann styrk. Alltaf gaman að gleðja aðra.



Hluti af hópnum.



Gjöf til þín frá okkur.



Eftir daginn er svo boðið upp á kakó og jólakökur.

13.12.2011 10:28

Jólakvöld

Jólakvöl G.F var haldið þann 8. desember. Nemendur spiluðu bingó og félagsvist, yngstu nemendurnir horfðu á mynd og svo gæddu sér allir á góðu bakkelsi og kakó. Myndir í albúmi.



Félagsvist að hefjast.

13.12.2011 10:24

Útilega Sarpurinn

Sarpurinn fór í útilegu þann 1. desember sem þykir ansi skrítinn tími til útilegu en við gistum í íþróttahúsinu og var mikið fjör í gangi. Við borðuðum pizzur saman, fengum leynigest og sögumann. Sumir sváfu nokkuð vel en aðriri sváfu ekki neitt. En það sem skipti máli er að það var gaman. Myndir í albúmi.



Fjörugur hópur.

07.12.2011 09:07

Náttúrufræði 9-10. bekkur

Smellið á slóðina til að byrja könnunina.

http://www.questionwritertracker.com/quiz/15925/AYDDF29T.html 

Gangi ykkur vel.

08.11.2011 13:32

Hreyfimyndir.

Var að ljúka við að setja inn í skrár hreyfimyndir gerðar í forritinu Pivot. Hreyfimyndirnar gerðu nemendur í 7. og 8. bekk. Njótið vel.

01.11.2011 13:15

Heimilisfræði 2. og 3. nóvember

Undirbúningur fyrir legókynningu og jólakvöld

Pizzusnúðar

7 dl hveiti.

1 msk. þurrger.

½ tsk salt.

3 og ½ dl volgt vatn.

½ dl. matarolía.

Allt sett í skál, þurrefnin fyrst, þá vatnið og að lokum matarolían. Hnoðað vel og látið hefast í 10 mín. Deiginu skipt í tvo hluta og annar flattur út í einu, smyrjið pizzusósu á útflatt deigið og stráið rifnum osti yfir. Því næst er deiginu rúllað upp og skorið í fingurþykkar sneiðar. Sneiðarnar eru settar á plötu og penslaðar með pískuðu eggi. Bakað við 180° í umþb. 15 mín.

Afmælismúffur

Hráefni                    

Aðferð

1 egg
1 dl sykur
50 g olía
1 dl mjólk
1 tsk vanilludropar
3 dl hveiti
2 tsk lyftiduft
3 msk súkkulaðibitar

  1. Stillið ofninn á 180°C jafnan hita.
  2. Setjið egg og sykur í hrærivélarskál og þeytið vel saman.
  3. Bætið olíu út í og hrærið vel saman við.
  4. Bætið mjólk og vanilludropum út í og hrærið vel.
  5. Setjið hveitið og lyftiduftið í skálina ásamt súkkulaðinu og hrærið saman við en ekki of lengi, þá verður deigið seigt.
  6. Skiptið deiginu í 12-14 múffumót og bakið í 12 mínútur.

28.10.2011 14:40

Heimilisfræði 2. -3. nóvember

Hakkað buff með góðri sósu - frestað um óákveðinn tíma 

Hráefni:

200 gr. nautahakk eða blandað hakk

1 msk kartöflumjöl

 ¾ dl mjólk

 ½ season all

1 brauðsneið rifin smátt

½ tsk timian

 ¼ tsk hvítlauksduft

 ¼ tsk salt

 1/8  tsk hvítur pipar

2 msk olía

2 msk hveiti

 

 Aðferð:

1.    Blandið saman í litla skál niðurrifnu brauði og mjólk.

2.    Mælið í stóra skál hakk, kartöflumjöl og krydd.

3.    Blandið brauðinu og mjólkinni saman við og hrærið í með sleifinni þar til allt er vel blandað.

4.    Mótið 3-4 jafnstór buff með höndunum.

5.    Blandið saman á disk salti, hveiti og pipar.

6.    Veltið buffinu upp úr hveitiblöndunni.

7.    Hitið olíu á pönnu og steikið buffin i u.þ.b. 3-4 min á hvorri hlið.

Sósa

Hráefni:

3 sólþurrkaðir tómatar í olíu

¼ tsk timian

1 lítill grænmetisteningur

1 ½ dl mjólk

1 dl hrein jógút

2 msk rjómaostur

svolítið salt

Aðferð:

1.   
Skerið tómatana smátt.

2.    Blandið efni í sósuna í lítinn pott.

3.    Hrærið í með þeytara allan tímann og passið að hafa vægan hita á meðan osturinn er að bráðna.

4.    Hellið sósunni yfir buffin á pönnunni, látið sjóða svolitla stund á vægum hita.

5.    Smakkið sósuna, saltið ef þarf.

 

 

28.10.2011 14:33

Íþróttadagurinn

Íþróttadagur Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar var í dag. Margt var í boði í keppninni s.s. fótbolti, blak, handbolti, bandý, hnit, krossgátur, suduko, stafsetning, olsen olsen, púsl, borðtennis, fótboltaspil, spurningakeppni og svo í lokin tóku nemendur þátt í skólahreysti.
Miðstig og unglingastig kepptu sín á milli og voru 9. og 10. bekkur stigahæst og unnu þau bikarinn (Tweety) 7. og 8. bekkur í 2. sæti og miðstig í 3. sæti. Yngsta stig var með keppni á mili þriggja hópa og vann hópur er nefndi sig Kálfarnir. Mikið fjör og góð stemning myndaðist í dag.
Myndir í albúmi á Mis og Ys.


Keppni í blaki.

Skólahreysti.


27.10.2011 15:42

Uppskriftir

Það eru komnar uppskriftir af kræsingunum sem nemendur bökuðu á þemadögunum, þær eru hér ap ofan í skrár. Njótið vel.
Kveðja
Eldhúshópurinn..

10.10.2011 14:40

Könnun í náttúrufræði 7-8. bekkur

Smellið á linkinn til að byrja könnunina ef það virkar ekki getið þið afritað linkinn. 

http://www.questionwritertracker.com/quiz/14866/KWDQ4PBZ.html 

Þegar könnunin er búinn þá verðið þið að halda áfram þangað til að kemur á skjáinn að gögnin hafi verið send.

Gangi ykkur vel.
Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 42
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 49810
Samtals gestir: 15762
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 13:46:35